Sverrir Páll til reynslu hjá AZ Alkmaar

Sverrir Páll eftir æfingu í Hollandi.
Sverrir Páll eftir æfingu í Hollandi.

Þórsarinn Sverrir Páll Ingason dvelur nú í Hollandi þar sem hann æfir með og skoðar aðstæður hjá hollenska úrvalsdeildarliðinu AZ Alkmaar.

Sverrir Páll er á sextánda aldursári og skrifaði undir sinn fyrsta leikmannasamning við Þór síðasta vetur. Hann er vængmaður en hefur einnig leikið sem bakvörður með 2.flokki í sumar og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk í vetur þar sem hann spilaði gegn KR og HK í Lengjubikarnum.

Sverrir hefur verið byrjunarliðsmaður í yngri landsliðum Íslands og leikið sex landsleiki fyrir U15 og U16. 

AZ Alkmaar óskaði eftir því við Þór að fá Sverri til æfinga hjá sér og æfir hann með U17 ára liði félagsins út þessa viku.

Við óskum Sverri til hamingju með þetta flotta tækifæri og góðs gengis ytra.