Þór-Keflavík verður kl.14.00 (ekki 12:00)

Leiktíma á leik Þórs og Keflavíkur í Lengjudeild karla sem fram fer á morgun á VÍS-vellinum hér á Akureyri hefur verið breytt. Leikurinn verður spilaður kl.14.00 en ekki 12.00. Eins og fram kemur á samfélagsmiðlum stendur mikið til og er bæði gleðistund á Hamarsbarnum og fjölskylduhátíð með andlitsmálningu og hoppköstulum. Dagskráin (ekki leikurinn) hefst kl.12.00!