Þórður Tandri mættur heim!

Þórður Tandri er mættur heim!
Þórður Tandri er mættur heim!

Strákarnir okkar halda áfram að skila sér heim í handboltanum! Þórður Tandri Ágústsson, eða bara Doddi eins og við Þórsarar þekkjum hann er mættur aftur heim í Þorpið eftir þriggja ára dvöl hjá Stjörnunni.

Það er svo sannarlega óhætt að segja að liðið okkar sé orðið ótrúlega spennandi fyrir næsta tímabil!

Páll Þorgeir Pálsson, formaður handknattleiksdeildar og Þórður Tandri, handsala samninginn!