Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Landsliðsþjálfarar Íslands í yngri landsliðum í handbolta hafa valið æfingahópa sem koma saman til æfinga á höfuðborgarsvæðinu í nóvember. Í þessum hópum eru tveir Þórsarar.
Stefán Árnason og Örn Þrastarson hafa valið 29 leikmenn til æfinga 8.-11.nóvember hjá U15. Í þeim hópi er Þórsarinn Guðmundur Levý Hreiðarsson.
Heimir Ríkarðsson og Maksim Akbachev hafa valið 29 leikmenn til æfinga 7. 11.nóvember hjá U19. Í þeim hópi er Þórsarinn Þormar Sigurðsson.
Smelltu hér til að sjá hópana í heild sinni.
Óskum okkar mönnum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.