Útileikur framundan gegn Leikni

Mynd: Þórir Tryggva
Mynd: Þórir Tryggva

Karlalið okkar fótbolta á leik á laugardaginn í Lengjudeildinni gegn Leikni í Reykjavík, nánar tiltekið í Breiðholtinu. Leikurinn hefst kl.14.00. Þrátt fyrir að möguleikar okkar á úrslitakeppni séu svo gott sem úr sögunni er ekki þar með sagt að öll spenna sér úr mótinu.

Í fyrsta lagi er mikilvægt að enda tímabilið vel en í öðru lagi þýðir tap að við erum óþarflega nálægt fallbaráttunni á meðan að sigur gulltryggir að menn geta farið í restina af tímabilinu og einbeitt sér að því að enda það vel án þess að vera í miklu stressi.

Að lokum skal tekið hér fram að einhverra hluta vegna datt umfjöllun og upphitun heimasíðunnar fyrir leikinn um sl. helgi gegn Fjölni út en honum lauk eins og flestir vita orðið 1-1. Beðist er velvirðingar á þessu en svo virðist sem að fréttirnar hafi einhverra hluta horfið úr kerfi heimasíðunnar.