Útileikur gegn Njarðvík í kvöld

Ýmir og félagar eiga mikilvægan leik í kvöld! Mynd: Þórir Tryggvason
Ýmir og félagar eiga mikilvægan leik í kvöld! Mynd: Þórir Tryggvason

Það bíður erfiður leikur Þórsara í kvöld í Lengjudeild karla. Okkar menn halda til Njarðvíkur og etja þar kappi við heimamenn.

Þeir grænu hafa byrjað frábærlega í deildinni og eru efstir að loknum fjórum umferðum með 10 stig.

Við sitjum í fjórða sæti með sex stig og er óhætt að segja að þó enn sé mikið eftir af tímabilinu að leikurinn í kvöld sé afar mikilvægur.

Leikurinn hefst kl.18.00 og er í beinni á www.lengjudeildin.is