Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Í vikunni sem leið hélt 22 manna hópur utan til Danmerkur frá Akureyri. Hópurinn innihélt 18 leikmenn á aldrinum 15-16 ára auk þjálfarateymis og fararstjóra. Um er að ræða úrvalshóp drengja úr félögum á Norðurlandi en hópurinn var valinn í framhaldi af landshlutaæfingum vetursins, afreksæfingum á landsbyggðinni sem er hluti af afreksstefnu KSÍ.
Búið var að skipuleggja æfingaleiki gegn jafnöldrum hjá dönskum félagsliðum, annars vegar hjá Íslendingaliðinu Lyngby sem leikur í efstu deild í Danmörku og hefur fjölda Íslendinga innanborðs. Hins vegar hið sögufræga lið AB, Akademisk Boldklub sem í dag leikur í dönsku C-deildinni.
Strákarnir flugu utan með NiceAir á sunnudag og komu sér fyrir í Kaupmannahöfn. Á mánudag æfði hópurinn saman á æfingasvæði í Valby þar sem lokaundirbúningur fyrir leikina fór fram.
Á þriðjudag var leikið gegn unglingaliði Lyngby og lauk leiknum með 3-1 sigri heimamanna. Mark Norðurlandsúrvalsins skoraði Jakob Gunnar Sigurðsson. Akademían hjá Lyngby þykir ein sú besta í Danmörku og því var um krefjandi verkefni að ræða fyrir íslensku drengina en fórst þeim það vel úr hendi þrátt fyrir tap.
Á miðvikudag var leikið gegn AB í Gladsaxe og þar höfðu íslensku strákarnir betur með þremur mörkum gegn einu í hörkuleik þar sem Mikael Breki Þórðarson, Halldór Ragúel Guðbjartsson og Pétur Orri Arnarson sáu um markaskorun íslenska liðsins.
Mikil ánægja var meðal þjálfara hvernig til tókst en að enda landshlutaæfingar KSÍ með Danmerkurferð var ákveðið tilraunaverkefni að frumkvæði yngri flokka þjálfara á Norðurlandi. Þjálfarar Norðurlandsúrvalsins voru Arnar Geir Halldórsson, yfirþjálfari hjá Þór og Eiður Ben Eiríksson, afreksþjálfari hjá KA. Runólfur Trausti Þórhallsson, markmannsþjálfari í akademíu FCK, slóst í hóp með þjálfarateyminu í Danmörku.
Í kjölfarið munu stelpur á sama aldri halda í sams konar ferð en þær munu leika gegn jafnöldrum sínum hjá Bröndby og Nordsjælland.
Liðsmynd af íslenska hópnum ásamt nöfnum má sjá hér að neðan og eru nöfn fulltrúa Þórs feitletruð. Í 18 manna hópi voru átta leikmenn frá Þór, sex frá KA og fjórir frá Völsungi.
Efri röð frá vinstri: Eiður Ben Eiríksson, Einar Freyr Halldórsson, Jakob Gunnar Sigurðsson, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Egill Orri Arnarsson, Aron Bjarki Kristjánsson, Þórir Hrafn Ellertsson, Pétur Orri Arnarson, Rúnar Snær Ingason, Sigursteinn Ýmir Birgisson, Davíð Leó Lund, Arnar Geir Halldórsson.
Neðri röð frá vinstri: Sverrir Páll Ingason, Mikael Breki Þórðarson, Breki Snær Ketilsson, Jóhann Mikael Ingólfsson, Aron Geir Jónsson, Halldór Ragúel Guðbjartsson, Frank A. Satorres Cabezas, Natan Aðalsteinsson
Ferðin var styrkt af fyrirtækjum á Norðurlandi