08.04.2022
Í gær fór fram fyrsti fundur með oddvitum þeirra flokka sem bjóða sig fram til bæjarstjórnar og voru það þau Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingar og Hlynur Jóhannsson, oddviti Miðflokksins sem riðu á vaðið.
Á fundum súpufundum Þórs spyr félagið öll framboð sömu tveggja spurninga
Spurningarnar sem spurt er, eru eftirfarandi:
07.04.2022
Töluvert var rætt í dag um svokallaða uppbyggingarskýrslu íþróttamannvirkja og kallað var eftir afstöðu framboðanna sem voru í panel hvort þau styddu það plagg óbreytt.
07.04.2022
Elmar Freyr Aðalheiðarson ríkjandi Íslandsmeistari í yfirþungavigt keppir um helgina á Íslandsmeistaramóti Hnefaleikasambands Íslands.
06.04.2022
Linda Guðmundsdóttir hefur verið ráðin íþróttafulltrúi Þórs og tekur til starfa 1. maí næstkomandi. Jón Stefán Jónsson, núverandi íþróttafulltrúi, verður frá þeim degi verkefnastjóri og mun meðal annars sjá um nýja heimasíðu félagsins auk þess að sinna öðrum tilfallandi störfum fyrir aðalstjórn Þórs.
06.04.2022
KA/Þór á þrjá fulltrúa í landsliðshópi Arnar Péturssonar, landsliðsþjálfara fyrir lokaleikina í EM í handbolta kvenna. Það eru þær Rut Jónsdóttir, Unnur Ómarsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir. Allar eru þær að sjálfsögðu lykilmenn í liði KA/Þórs.
06.04.2022
Við vekjum athygli á breittum fundartíma á aðalfundi hnefaleikadeildar Þórs sem fram fer á morgun, fimmtudag. Fundurinn hefst kl.19. En ekki kl.20 eins og áður hafði verið auglýst.
05.04.2022
Að þessu sinni verða oddvitar Miðflokks og Samfylkingarinnar, Hlynur Jóhannesson og Hildur Jana Gíslasdóttir í panel og ræða bæjarmálin og framtíðina.
04.04.2022
Aðalfundur Íþróttafélagsins Þórs verður haldinn í Hamri mánudaginn 11. apríl klukkan 17:30.
04.04.2022
Mikið magn er nú af óskilamunum á borðum í Hamri og hefur verið þar í nokkra daga, flokkað og uppraðað svo auðvelt er að finna þar flíkur. Það sem verður ósótt á miðvikudag, 6. apríl, verður gefið í fatasafnanir.
04.04.2022
Meistaraflokkur karla og yngri flokkar Þórs munu í sumar leika í nýjum keppnisbúningi frá Nike. Er þetta fjórða sumarið sem Þór spilar í Nike en ,,gamli" búningurinn hafði verið við lýði þrjú undanfarin ár og reynst afar vel. Strákarnir í meistaraflokki vígðu nýja búninginn um helgina í úrslitaleik Kjarnafæðimótsins og er óhætt að segja að þeir, bæði búningarnir og strákarnir, séu glæsilegir og félaginu til sóma.