04.04.2022
Íslandsmeistarar KA/Þórs lentu í miklum vandræðum með lið HK, sem er í næst neðsta sæti Olísdeildar kvenna í handbolta, í KA-heimilinu í gær. Stelpurnar okkar knúðu þó fram sigur, 26:23, eftir að gestirnir voru einu marki yfir í hálfleik, 14:13.
04.04.2022
Þórsarinn Björgvin Helgi Valdimarsson keilari náði þeim stórmerkilega áfanga um helgina að spila fullkominn leik í fyrsta skipti; hann felldi hverja einustu keilu í öllum skotum og fékk 300 stig. Björgvin er sá eini sem náð hefur þessum árangri í deildarkeppninni hérlendis vetur en þess verður að geta að aðrir keilarar hafa afrekað þetta á öðrum mótum vetrarins, en hvorki í deildum þeirra bestu né öðrum.
01.04.2022
„Það eru rosalega margir með neikvæða mynd af Þór sem birtist í því að fólki finnst Þór ekki geta spilað góðan fótbolta og að hér séu allir baráttuhundar og vitleysingar. Þetta er náttúrlega mjög skökk mynd af Þór,“ segir Þorlákur Árnason, í ítarlegu spjalli við þá Aron Elvar og Óðinn Svan hjá Þórs-podcastinu.
01.04.2022
Í dag 1. apríl (nei þetta er ekki gabb) fór í loftið ný heimasíða íþróttafélagsins Þórs. Síðan er hýst af Stefnu og er því um gott norðlenskt samstarf að ræða eins og vera ber. Eldri heimasíða Þórs hefur þjónað félaginu dyggilega í gegnum tíðina og vill félagið koma sérstökum þökkum á framfæri til D10 fyrir farsælt og gott samstarf í gegnum tíðina.
01.04.2022
Þór mætir KA í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins í knattspyrnu karla á morgun, laugardag kl.19.30 í Boganum.
01.04.2022
Á næstu vikum fara fram landsliðsæfingar hjá yngri liðunum en æfingarnar eru liður í undirbúningi fyrir verkefni sumarsins.
01.04.2022
Á næstu dögum verða haldnir aðalfundir deilda, sá fyrsti verður fimmtudaginn 7. ápríl þegar stjórn Þórs/KA ríður á vaðið.
01.04.2022
Um helgina er ansi mikið um að vera hjá fótboltafólki Þórs og verður spilaður fótbolti í Boganum frá morgni til kvölds næstu dagana.
Síðasta Goðamót vetrarins fer fram í Boganum þar sem stelpur úr 6.flokki, hvaðanæva af landinu munu spreyta sig og mun Þór tefla fram sex liðum skipuðum 40 stelpum sem hafa æft af krafti í allan vetur.
Um er að ræða 70.mótið í Goðamótaröðinni sem hefur reynst félaginu ansi dýrmæt.
09.03.2022
Þór/KA mætti Reykjavíkurmeisturum Þróttar í þriðja leik sínum í riðli 2 í A-deild Lengjubikarsins í Boganum í gær (laugardag). Baráttan um sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins er jöfn og spennandi og því skiptir hvert stig máli. Glögglega mátti sjá á leikmönnum Þórs/KA að stelpurnar vildu bæta fyrir slakan leik gegn Aftureldingu síðastliðinn sunnudag.
09.03.2022
Leggjumst á eitt!! Leggjum niður störf, brunum suður og öskrum stelpurnar áfram í úrslitaleikinn, tökum svo langa helgi og komum þessum frábæru handboltakonum og stelpum alla leið. Meistaraflokkur og 4.flokkur kvenna í okkar sameiginlega liði Ka/Þór, eiga skilið stuðning allra Akureyringa.
Áfram stelpur! Áfram Ka/Þór!